20aprķl
Vá...svakalegur dagur...Við skelltum okkur í sund í dag..ekki á Ísafirði, ekki á Suðureyri, ekki á Flateyri og ekki heldur Þingeyri heldur í REYKJANESI...ahhh that was so sweeeeeeeeet. Skítakuldi en alveg ótrúlega gott. Emma svaf bara á meðan og ég og Ívar flatmöguðum í "stóra sjónum", Tumi og Eyjó fóru að mæla "helvítis sigplattann" en skelltu sér síðan í sund líka.
Fengum okkur feitan hamborgara..
25janśar
Æluhljóð það versta í heimi
Þá mun það vera vísindalega sannað, að hljóðið sem heyrist þegar kastað er upp er það óþægilega sem fólk heyrir. Þá hefur komið í ljós, að konur eru viðkvæmari fyrir hljóðum en karlmenn.
Þetta er niðurstaða rannsóknar, sem Trevor Cox hefur gert á vegum Salford háskóla í Manchester á Englandi. Cox hefur rannsakað áhrif óhljóða í 30 ár að undanförnu hefur nærri hálf milljón manna tekið þátt í könnun á heimasíðu háskólans þar sem hægt er að hlusta á óþægileg hljóð.
„Ég hef vísindalegan áhuga á því hvernig fólk bregst við tilteknum hljóðum. Við erum forrituð þannig að við þolum illa óhugnanleg hljóð, sem æluhljóð, vegna þess að það er mikilvægt fyrir okkur að forðast eitraða hluti en í ljós kom að mörgum býður við hljóðum, sem eru síður en svo hræðileg," er haft eftir Cox á heimasíðu skólans.
Í ljós kom, konur hafa minna þol gegn óþægilegum hljóðum en karlmenn og í könnuninni kom í ljós að konur gáfu 25 af 35 óhljóðum, sem fólk var látið hlusta á, verri einkunn en karlmenn. Undantekning var barnsgrátur, sem körlum þótti mun óþægilegri en konum.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós, að fólki þótti ákveðin hljóð óþægilegri ef myndir fylgdu með. Þannig þótti hljóð í tannbor mun óþægilegra ef mynd af bornum sást þegar hljóðið heyrðist en ef hljóðið heyrðist skýringalaust.
Tíu óþægilegustu hljóðin að mati þátttakenda í rannsókninni voru eftirfarandi:
- Karlmaður kastar upp
- Ískur í hljóðnema
- Barnagrátur (mörg börn)
- Marr í togvindu
- Marr í vegasalti
- Spilað falskt á fiðlu
- Hljóð í „fretblöðru"
- Barnsgrátur (eitt barn)
- Rifrildi
- Suð í háspennulínum
Óhljóðasíðan á netinu
Þetta er það sem ég hef alltaf haldið fram en enginn trúað mér...yeahh right, þykist nú vita það að flestir séu sammála þessu.
23janśar
Já ný vika gengin í garð og mér líður eins og ég sé ríkasta manneskja í heimi, þó í raun eigi eg engan pening HA HA. Peningur er líka bara það næstsíðasta sem ég hugsa um þessa dagana, ég er svo hamingjusöm. Allt gengur rosalega vel hjá okkur snúllu sem by the way fær BRÁÐUM nafn...læt vita af því seinna ;)
Hún er reyndar ekki að þyngjast nóg þannig að nú verður maður að passa sitt....enda er þetta nr.1-2 og 3 og alveg upp í það 100asta sem ég hugsa um þessa dagana...BRJÓST....brjóstagjöf....og aftur BRJÓST...Stundum líta þau út samt eins og illa gerð silikonbrjóst, misræmi og ég veit ekki hvað en ég er ánægð með það sem ég hef, þó svo ég standi mig að því að staldra örlítið við fyrir framan spegil og skella upp úr öðru hvoru, það þarf ekki meira til að koma brosvíbrunum af stað og reyndar líka til að koma táravíbrunum af stað en það er annað mál
Ótrúlegt hvað maður getur verið tilfinninganæmur/RÍKUR með og án bumbu. Nú jæja, þá kallar mál númer 1 á mig, brjóstagjöf og BRJÓST, eins gott að standa sig í stykkinu/brjóstinu.
Við heyrumst bara seinna, hafið það gott í bili
Heiða